Internetið logaði núna rétt fyrir helgi vegna þess að raunveruleikastjarnan Kylie Jenner var sögð hafa látið rapparann, Tyga, róa. Hver einasti slúðurmiðill velti sér upp úr sambandsslitunum og var sá orðrómur á kreiki að Tyga hefði haldið framhjá Kylie.
Sjá einnig: Kylie Jenner og Tyga eru hætt saman
Hvað sem til er í sögusögnum um ástæðu sambandsslitanna þá virðist raunveruleikastjarnan ekki hafa verið lengi að taka rapparann í sátt aftur. En þau mættu hönd í hönd á American Music Awards í gærkvöldi.