Engar umbúðir – Lægra vöruverð

Lífræn hágæðavara í Uppskeru.

Uppskera er ný heilsuverslun sem selur lífrænar hágæðavörur eftir vigt. Hugmyndin að fyrirkomulagi verslunarinnar er fyrst og fremst sú að koma til móts við viðskiptavininn og umhverfið á sem hagkvæmastan máta með því að bjóða honum upp á að koma með ílát að heiman sem hann getur látið fylla á í versluninni. Fyrir vikið er hægt að halda vöruverði niðri og engum umbúðum þarf heldur að farga í náttúrunni.

Uppskera 013[3]
Stefán framkvæmdastjóri Uppskeru ásamt dóttur sinni.
Verslunin Uppskera er lítið fjölskyldufyrirtæki staðsett í hlýlegu húsnæði í Skeifunni 3. Það er í eigu Björns Inga Stefánssonar en sonur hans Stefán Björnsson er framkvæmdastjóri þess. Björn hefur um árabil flutt inn heilsuvörur frá Þýskalandi og Hollandi í gegnum annað fyrirtæki sitt Alvöru heilsuvörur. Þar er líka heilsudrykkurinn vinsæli Alpha Daily framleiddur, hægt er að koma við í Uppskeru með  tómar flöskur drykkjarins og fá áfyllingu fyrir lægra verð.

Stefán sýndi mér tunnu staðsetta í versluninni stútfulla af hágæða ólífuolíu frá Ítalíu sem líka er hægt að fá tappað á flöskur. Þarna er líka að finna dýrðarinnar villiblómahunang, kókoshnetuolíu, súkkulaði, fæðubótarefni úr hampi, vitamin, baunir, fræ, krydd og ofurfæði á borð við Morniga jurtina ásamt ýmsu öðru góðgæti.

Eiginlega er upplifunin að koma inn í Uppskeru eins og að ganga inn í Hollustuland þar sem hægt er að velja sér bland í ílát, en ekki poka eins og tíðkast á nammibörum sumra matvörverslanna.

 

 

SHARE