Er Calvin Harris kominn með nýja kærustu?

Calvin Harris hefur komið úr felum með nýja skvísu upp á arminn. Svo virðist sem hann hafi ekki látið sambandsslitin og ósættin við Taylor Swift hafa of mikil áhrif á sig og eru miðlar að velta vöngum yfir því hvort um sé að ræða hefnd eða karma, þar sem Taylor tók sér ekki einn dag í að staldra við eftir að hafa hætt með honum.

Sjá einnig: Er Taylor Swift búin að fara í brjóstastækkun?

Nýja skvísan er ekki bara hver sem er, heldur sönkonan Tinashe. Parið vann saman fyrir tveimur árum að laginu Dollar Signs og hafa alltaf verið í sambandi síðan þá. Heimildir segja að þau hafa verið að hittast í nokkrar vikur og farið á nokkur stefnumót.

Það er nú gott að Calvin er ekki enn í molum eftir að Taylor braut hjarta hans í spað og vonandi verður hún hamingjusöm áfram með Tom Hiddleton.

Sjá einnig: Calvin Harris semur lag um framhjáhald

c

cc

SHARE