Kylie Jenner hefur þvertekið fyrir það að hafa sett smá fyllingu í varirnar en nýjar myndir sem náðust af henni á flugvelli í London ýta enn frekar undir þær sögusagnir að hún hafi fengið sér bótox.
Kylie er yngsta barn Kris og Bruce Jenner og er einungis 17 ára gömul. Þegar fjölmiðlar fóru fyrst á kreik með þær sögusagnir að Kylie hafi látið eiga við varirnar hafði hún þau svör á reiðum höndum að hún notaði bara varablýant og varalit til að stækka varirnar.
Myndirnar sem náðust af henni á föstudag, þar sem hún var alveg ómáluð, sýna hins vegar að þrátt fyrir engan varablýant eða varalit þá eru varirnar töluvert stærri heldur en áður. Kylie reyndi eftir bestu getur að hylja varirnar en talið er að hún hafi verið nýbúin að láta sprauta meiru bótoxi í þær.
Tengdar greinar:
Kylie Jenner (17) búin að fara í 6 lýtaaðgerðir
Kylie Jenner: Stælir bossann á stóru systur
TIMES: Kylie og Kendall meðal áhrifamestu unglinga heims
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.