Er leikkonan Cameron Diaz trúlofuð?

Leikkonan Cameron Diaz hefur verið að skarta ansi fallegum og glitrandi hring á vinstri hönd upp á síðkastið sem hefur leitt til þess að slúðurmiðlarnir hið vestra hafa haldið því fram að Cameron sé trúlofuð.

Í hádegisverðarboði hjá Academy Hollywood Costume síðastliðinn miðvikudag var leikkonan stöðugt að fikta í hringnum og sýna hann en seinna um kvöldið þegar Cameron fór út að borða með kærasta sínum Benji Madden skartaði hún einnig sama hring. Parið fór út að borða á ítalska staðnum Madeo með vinum og var leikkonan stöðugt að sýna vinafólki þeirra hringinn á meðan þau nutu matarins.

Eftir að hafa eytt tíma með saman með fjölskyldu Cameron í júlí fyrr á árinu tók parið næsta skrefið og flutti Benji inn til Cameron í hús hennar í Beverly Hills.

Bæði Cameron og Benji eru sögð vera afar hamingjusöm eftir að þau fóru hittast.

cameron-diaz-benji-madden-inline

SHARE