Ertu með háræðaslit eða rósroða – Ný vara í Skin Doctors línunni

Íslenskar vetrarhörkur fara ómjúkum höndum um hörund karla og kvenna. Skin Doctors kynnir sérhæfðar lausnir við algengum húðvandamálum sem virka.

Skin Doctors húðvörurnar eru þróaðar af lýtalæknum sem settu fyrirtækið á laggirnar  til að svara eftirspurn eftir skilvirkari lausnum í húðumhirðu, án skurðaðgerða.

Með sanni má segja að húðvörur Skin Doctors brúi bil á milli hefðbundinna húðvara og lýtaaðgerða. Niðurstöður rannsókna hafa sýnt fram á marktækan árangur enda er húðvörulína Skin Doctors sérhönnuð til að leysa ákveðin húðvandamál. Allir finna sína sérhæfðu lausn hjá Skin Doctors.

Hvert og eitt krem inniheldur virkt efni sem þjónar sérhæfðum tilgangi. Öll efni eru vísindalega prófuð og hafa sýnt fram á árangur hvert fyrir sig.

Skin Doctors býður fyrsta flokks lausnir þegar kemur að endurnýjun húðar ásamt því að veita húðinni yngra og ferskara útlit.

 Háræðaslit og rósroði

Háræðaslit og rósroði í andliti er hvimleitt vandamál og engin varanleg lausn til. Háræðaslit kemur oftast fram vegna erfða og lélegrar blóðrásar og verður sýnilegra með tímanum. Einkenni geta versnað við hitabreytingar, sólarljós, kryddaðan mat, áfengi og heita drykki. Rósroði kemur oftast fram á kinnum, höku, nefi og enni og er þekkt vandamál þar sem háræðaslit er til staðar.

Falleg, lýtalaus húð

Capillary clear er frábær viðbót við línuna sem sérhæfð lausn fyrir andlit en þar til í dag hefur aðeins gefist sá kostur að nota Vein Away sem aðalega er ætlað á líkama.

Capillary Clear er himnasending fyrir þá sem þjást af háræðasliti og rósroða í andliti. Kremið inniheldur virkt jurtasamband sem rannsóknir sýna að stórlega dragi úr háræðasliti og mislitum blettum á húð á 4 vikum. Einnig inniheldur kremið virka rakagjafa sem sjá til þess að halda húðinni mjúkri og fallegri.

 Staðreyndir um skin doctors

· Henta öllum húðgerðum.

· Þróaðar af virtu lyfjafyrirtæki í samvinnu við lýtalækna.

· Sporna gegn náttúrulegu hrörnunarferli.

· Endurnýja húð og gefa fallegri áferð.

· Hjálpa til við að jafna út húð á erfiðum svæðum.

 

Skin Doctors vörurnar fast í Lyf og heilsu Kringlunni, Lyfju, snyrtivörudeildum Hagkaupa og Fríhöfn.

Þess má geta að kremið verður með 20% afslætti í Lyfju frá og með mánudeginum 25. febrúar. 

Skin Doctors er á Facebook

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here