Eru Freddie Prinze Jr. og Sarah Michelle Gellar að skilja?

Tímaritið Life & Style greinir frá því í nýjasta tölublaði sínu að hjónaband Freddie Prinze Jr. og Sarah Michelle Gellar hangi á bláþræði. Freddie og Sarah gerðu garðinn frægan seint á síðustu öld og hafa verið gift í þrettán ár, sem telst ansi góður árangur í Hollywood. Þau eiga tvö börn og samkvæmt heimildarmanni tímaritsins er langt síðan að hjónabandinu sjálfu lauk, þau hafa einfaldlega ekki viljað skilja barnanna vegna.

Sjá einnig: Heimili Freddy Prince Jr og Sarah Michelle Gellar

freddie-prinze-jr-sarah-michelle-gellar

SHARE