Fáránlega góðar kjúklingarúllur með spínat- og parmesanfyllingu

Þessi unaðslega ljúffengi réttur er fengin af blogginu Ljúft í munn og maga. Þar má finna aragrúa gómsætra uppskrifta og því er um að gera að smella síðunni í bookmarks.

Svona af því að stundum hefur maður jú hugmyndarflug á við ljósastaur þegar kemur að eldamennskunni.

5061011_orig

Kjúklingarúllur með spínat- og parmesanfyllingu

3 kjúklingabringur, skornar í 2-3 sneiðar efir endilöngu á breiðari kantinn, fer eftir stærð á bringum

sirka 1/2 bolli brauðrasp

1/4 bolli parmesanostur (rifinn og skipt í 2 hluta )

1 egg ( eða 2 eggjahvítur ) pískað saman

200 gr spínat, fínt skorið

1 mozzarella kúla (150 gr)

3 msk ricotta ostur ( má sleppa og nota eitthvað annað)

ólífuolía til að smyrja formið

rúmlega 1 bolli uppáhalds pizzu- eða spaghettisósan ykkar (eða búið til ykkar eigin, ég gerði mín eigin)

ítölsk krydd að eigin vali, ferskt er best –  til dæmis timian eða rósmarín (ef ekki er notað ferskt má jafnvel nota Lamb Islandia frá Pottagöldrum)

salt og pipar

  • Byrjið á því að fletja aðeins út kjúklingasneiðarnar með flötum kjöthamri eða setjið plast undir og ofan á og fletjið með höndunum. Hitið ofninn í 200°c.
  • Blandið brauðraspi og helmingnum af parmesan-ostinum saman í skál og pískið eggið í aðra skál.
  • Skerið niður hálfa mozzarella-kúlu og setjið í skál, ásamt restinni af parmessan-ostinum, sirka 2 matskeiðum af eggi, ricotta osti og spínati. Blandið vel saman.
  • Leggið kjúklingasneið á disk, saltið og piprið létt, smyrjið sirka 2 matskeiðum af osta- og spínatblöndunni á sneiðina og rúllið síðan upp. Veltið rúlluni varlega í upp úr egginu og þá upp úr rasp- og ostablöndunni. Leggið í eldfast mót sem búið er að smyrja með olíu og hafið saumhliðina niður, þá er óþarfi að stinga þetta saman.
  • Bakið í 25 mínútur og takið þá réttinn út úr ofninum og setið pizzusósu yfir hverja rúllu. Skiptið afganginum af mozzarella-ostinum yfir og notið einhverja góða tegund af rifnum osti með eða setjið meira af mozzarella. Allt eftir því hvað hugurinn girnist
  • Bakið þar til osturinn hefur bráðnað.

1

Tengdar greinar:

Heilsteiktur kjúklingur með karrí- og eplasósu

Tómat-karrý kjúklingur

Basilkjúklingur með hlynsýrópi og grilluðum fetaosti – Uppskrift

SHARE