Glæsikonan Jenner á nýjustu forsíðu Vanity Fair : „Ég heiti Caitlyn”

Raunveruleikastjarnan sem áður hét Bruce Jenner, er orðin kona og prýðir forsíðu Vanity Fair og ber umbreytinguna glæsilega. Annie Leibovitz myndaði gullverðlaunahafann fyrir glansritið og stjörnublaðamaðurinn Buzz Bissinger tók sjálft viðtalið, en þar ræðir Jenner ferðalagið frá Bruce til Caitlyn.

Sjá einnig: Khloé Kardashian: keypti kvenmannsföt fyrir Bruce

Ef ég væri dauðvona og hefði haldið þessu leyndu alla mína ævi og aldrei gert neitt til að verða ég sjálf þá myndi ég liggja fyrir dauðanum og hugsa; – Þú klúðraðir öllu lífi þínu. Algerlega.

Svona lítur Caitlyn út á forsíðu Vanity Fair:

enhanced-12391-1433175279-8

Sjá einnig: „Mér líður eins og mér hafi mistekist“

Í myndbandsumfjöllun sem skotin var að tjaldabaki meðan á viðtalinu og ljósmyndatökunni sjálfri stóð segir Jenner ennfremur:

Bruce lifði í lygi. Hann þurfti alltaf að ljúga. Allan liðlangan daginn. Frá því að hann vaknaði og þar til hann fór að sofa. Caitlyn þarf ekki að ljúga. Caitlyn á sér engin leyndarmál. Um leið og forsíða Vanity Fair verður gerð opinber, er ég orðin frjáls kona.

Hér má sjá myndbandsumfjöllunina sem Vanity Fair birti í dag:

SHARE