Góð ráð fyrir fólk sem sinnir skrifstofuvinnu

Það er áhættusamt  að sitja við vinnu allan daginn og getur  stytt ævina um nokkur ár en fylgni er á milli kyrrsetuvinnu og hjarta-og æðasjúkdóma, sykursýki, ákveðinna krabbameina og stoðkerfismeina. Mikilvægt er að vera meðvitaður og standa upp, gera æfingar og hvíla augun reglulega yfir daginn.

Sjá einnig: Aftur á spítalann í aðra aðgerð

Hér eru nokkur góða ráð sem geta stuðlað að betri heilsu og líðan við skrifborðið:

  1. Skjáhvíld á amk 20 mín fresti og horfa í 20 sek á eitthvað sem er í fjarlægð.
  2. Nota augndropa við skjáhorf. Við blikkum sjaldnar augum þegar horft er lengi á skjá og táraframleiðsla er minni. Það leiðir til augnþurrks,þreytu og höfuðverks. Fást án lyfseðils í apóteki.
  3. Góð tölvugleraugu. Fylgjast reglulega með sjóninni og fjárfesta í tölvugleraugum ef sjón er að breytast og þá með glampavörn.
  4. Stilla skjá þannig að ekki glampi á hann frá glugga eða ljósi,stilla birtustig á skjá eftir umhverfisbirtu.
  5. Liðleikaæfingar. Sitja og standa til skiptis og gera liðleikaæfingar á klukkutímafresti
  6. Nuddbolti. Við aumum axlar-og bakvöðvum er gott að hafa harðan nuddbolta í vinnunni til að þrýsta á auma vöðva, fást hjá sjúkraþjálfara eða íþróttaverslunum
  7. Lofta vel og stilla rakastig. Opna glugga,athuga að rakastig sé í lagi í rými og hiti 18-22°. Getur verið gott að hafa rakatæki inni í rými.
  8. Stilla stól,borð og skjá þannig að
  • hné séu í beinni línu eða aðeins lægri en mjaðmir
  • efri brún skjás á að vera í beinni sjónlínu
  • handleggir í 110° beygju niður að lærum og eins að hendur vísi niður við
  1. Önnur hjálpatæki til að breyta álagi eru t.d.
  • yoga bolti og skiptast á við stólinn að sitja á,breytir álagi á bak og styrkir magavöðva
  • jafnvægisbretti til að standa á við skrifborðið,fær spennu í bak- og magavöðva
  • leikfimiteygjur,til ýmsar æfingar á netinu til að gera við skrifborðið
  • taka alltaf tröppurnar og nota vinnuhlé til að fara eina aukaumferð í tröppunum

Gangi ykkur vel,

Höfundur greinar

  • Guðrún Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur

Greinin er frá Doktor.is og er birt með góðfúslegu leyfi þeirra.

SHARE