Hægt að gera mjög hollt úr einföldum hráefnum

Rósa Guðbjarts sendir frá sér nýja matreiðslubók með áherslu á nesti og millimál. Allar uppskriftirnar eru hollar og einfaldar þannig stálpaðir krakkar og unglingar eiga auðvelt með að fylgja þeim.

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, sendi á dögunum frá sér bókina Hollt nesti – morgunmatur og millimál. Rósa hefur skrifað um mat í blöð og tímarit í næstum tuttugu ár og hefur gefið út nokkrar matreiðslubækur svo hún er enginn nýgræðingur þegar kemur að matargerð.

„Ég er alltaf að spá og spekúklera í nýjum uppskriftum og nýjum möguleikum. Síðustu ár hef líka tekið mikið af myndum, þannig ég er alltaf með eitthvert efni í vinnslu. Bókin er því samsafn uppskrifta sem ég hef sjálf unnið með í eldhúsinu með krökkunum mínum í gegnum árin,“ segir Rósa um tilurð uppskriftanna í bókinni. „Ég er alltaf að reyna að hafa nestið hjá krökkunum fjölbreytt og girnilegt og þannig að það gefi þeim réttu orkuna. Það er svo mikilvægt að nestið og millimálið sé hollt og næringarríkt, og hafi góð áhrif á blóðsykurinn. Ég hugsa uppskriftirnar út frá því, það er enginn hvítur sykur eða hvítt hveiti notað. Ég er mikið með fræ, hnetur og hafra sem við vitum að gefur góða orku.“

Dóttir Rósu, Margrét Lovísa, hefur líka mikinn áhuga á matargerð og hefur síðustu ár hugað vel að hollustunni. „Hún á nokkrar uppskriftir í bókinni og vann með mér að þessu. Uppskriftirnar eru því hugsaðar þannig að stálpaðir krakkar og unglingar eigi auðvelt með fylgja þeim,“ segir Rósa, en hver uppskrift inniheldur ekki mörg hráefni. Þá notar hún einföld hráefni sem við þekkjum langflest og eru til í skápunum heima. „Mér finnst mikilvægt að þetta sé einfalt, bæði hvað hráefni og vinnslu varðar. Ef manni dettur í hug að búa til orkustykki þá á það ekki að þýða að maður þurfi að fara út í búð og leita að allskonar skrýtnum hráefni. Það er hægt að gera mjög hollt úr einföldum hráefnum. Bókin á að höfða til almennings sem vill hafa matarræðið í hollari kantinum. Það eru engar öfgar.“

Þegar Rósa útbýr mat fyrir fjölskylduna reynir hún að nota tiltölulega hreint hráefni og kynnir það fyrir börnunum. „Það er mjög gott að fá þau til liðs við sig með því að láta þau hjálpa til að sjá um nestið sitt. Í bókinni eru til dæmis nokkrar uppskriftir að orkustykkjum sem þarf ekki einu sinni að baka. Það er mjög þægilegt fyrir krakka. Þau hafa líka bara svo gaman af því að gera þetta.“

28901 - Trönuberjastykki
Orkustykki með kókos og trönuberjum
– sem ekki þarf að baka

5 dl hafraflögur
½ dl kókoshveiti
½ dl kókosmjöl
50 g smjör
1 tsk. vanilludropar
1 dl hunang, fljótandi
1½ dl kókosolía, fljótandi
1 dl möndlur, smátt saxaðar
1 dl þurrkuð trönuber, söxuð

1. Blandið saman í stórri skál hafraflögum, kókoshveiti og kókosmjöli.
2. Bræðið smjör og blandið saman við vanilludropa, hunang og kókosolíu.
3. Hrærið síðan þurrefnum og vökvablöndu vel saman.
4. Bætið möndlum og trönuberjum saman við.
5. Setjið blönduna í form og þrýstið vel og jafnt niður.
6. Kælið í a.m.k. 2 klukkustundir og skerið í bita.
7. Geymist í lokuðu íláti í kæli.

28901 - Haframúffur

Haframúffur með banönum og kókos
12 stk.

8 dl hafraflögur
1 dl kókosmjöl
1½ tsk. lyftiduft
½ tsk. matarsódi
3 egg
1 dl hunang eða hlynsíróp
2 vel þroskaðir bananar, maukaðir
200 g grísk jógúrt
½ tsk. vanilludropar

1. Hitið ofninn í 200 gráður.
2. Blandið þurrefnum saman í skál.
3. Hrærið egg, hunang, banana, jógúrt og vanilludropa saman í annarri skál.
4. Blandið síðan öllu saman.
5. Skiptið deiginu í múffuform og bakið í 20 mínútur.

28901 - bók

Greinin birtist fyrst í amk, fylgiblaði Fréttatímans.

SHARE