Hætt við að hætta saman

Blac Chyna og Rob Kardashian hættu saman með látum í byrjun þessarar viku. Rob eyddi út öllum myndum af Blac sem hann var með inni á Instagram reikning sínum, en daginn eftir voru þau byrjuð saman aftur.

Sjá einnig: Rob Kardashian og Blac Chyna hætt saman

Blac Chyna gengur með barn þeirra Rob og hefur skartað krúttlegri bumbu seinustu vikur. Á þriðjudag sást til hennar í lúgunni á Taco Bell í Los Angeles, þar sem hún fékk sér sterkan  mexíkanskan mat á silfurlitaða Range Rover-num sínum.

369D814E00000578-3709670-image-a-72_1469569800037

Það fór ekkert á milli mála að Blac var komin með trúlofunarhringinn aftur svo það virðist allt vera í lukkunnar velstandi enn á ný hjá þeim skötuhjúum.

369D801A00000578-3709670-image-m-74_1469569946212

 

SHARE