
Þær Kim, Khloe og Kourtney Kardashian eru sagðar hafa snúið baki við Caitlyn Jenner. Heimildarmaður DailyMail segir frá því að allur stuðningurinn sem þær sýndu Caitlyn í upphafi hafi einungis verið leikaraskapur fyrir myndavélarnar, sem fylgja þeim við hvert fótmál.
Sjá einnig: Caitlyn Jenner á í hættu að vera kærð fyrir manndráp af gáleysi
Þegar slökkt er á myndavélunum eru hlutirnir allt, allt öðruvísi.
Kardashian-systurnar eru víst vonsviknar út í Caitlyn og kenna henni um að þær hafi misst föðurímynd sína. Eins virðast þær ennþá reiðar við Caitlyn eftir allt sem hún lét flakka í viðtalinu við Vanity Fair.
Ástandið er slæmt. Nánast öll fjölskyldan hefur snúið baki við Caitlyn. Ég er ekkert viss um að það verði nein frekari samskipti þeirra á milli.