
Þegar LeeRay King var 14 ára byrjaði hann að nota einnota „veip“ eða rafrettu og notkun hans varð sífellt meiri og hann veipaði alla daga í 2 ár. „Ég var eiginlega beittur hópþrýstingi til að byrja að veipa,“ sagði LeeRay. „Mér líkaði það ekki til að byrja með en eftir fyrstu vikuna var ég orðin mjög háður því,“ sagði LeeRay og segir að hann hafi verið farinn að nota um það bil 4 einnota veip á einni viku.
Það var svo í ágúst árið 2024 að LeeRay var lagður inn á spítala vegna verks í vinstri síðunni. Rannsóknir leiddu í ljós að sársaukinn var vegna loftbrjósts, en þá kemur gat á lungað sem veldur því að lungað fellur saman.

Lungu LeeRay féllu saman fjórum sinnum á næstu mánuðum og þá var tekin ákvörðun um að hann þyrfti að fara í skurðaðgerð til þess að laga lungu drengsins. Aðgerðin heppnaðist ekki og þurfti LeeRay að gangast undir aðrar aðgerðir. Það endaði svo með því að læknarnir þurftu að fjarlægja svarta búta af lunga LeeRay sem voru ónýtir af veipolíunni sem hann hafði verið að nota. Læknarnir settu þessa búta í lofttæmdan poka til að sýna drengnum hvað veipið gerði við lungu hans.

Móðir LeeRay, Kylee Jope, sagði að þegar þau hefðu séð pokann hafi þau verið í algjöru sjokki. Hún hafi sjálf engan veginn gert sér grein fyrir því hversu skaðlegt það væri að veipa. LeeRay hefur skiljanlega hætt að nota veipið og hefur meira að segja farið í skóla og varað ungmenni við notkun á þessum skaðlegu gufum.
Sjá einnig:
- Er mygla á heimilinu? – Þetta eru einkennin

- Hann veipaði alla daga í þrjú ár og þetta var tekið úr lungum hans

- Dekur og notalegheit á aðventunni

- Hvað þarf að hafa í huga þegar þú ætlar að byrja að lyfta eftir 35 ára?

- Hvað er Inflúensa?

- 4 merki um að þú sért að borða of mikið af salti















