Harmageddon hættir? Sir Mills verður þeim að falli?

Þú hefur líklega séð umfjöllun okkar hér um Sir Mills og lag hans “stúlka í nauð” sem fjallaði (um að hans sögn) um sjúkdóm sem allar konur væru haldnar “þær eru sjúkar í typpi” sagði Sir Mills í viðtali við okkur sem þú getur séð hér þar sem hann segir að þessi fíkn sé í raun verri en heróínfíkn.

Stjórn X-ins 977 birti eftirfarandi status á Facebook síðu þáttarins

Útvarpsþættinum Harmageddon tímabundið vikið úr starfi.

Dagskrárgerðarmönnum Harmageddon á útvarpsstöðinni X 977 hefur verið gert að sæta brottrekstri um óákveðin tíma vegna brota á siðareglum útvarpsstöðvarinnar. Yfirstjórn X-ins 977 hefur tekið þessa ákvörðun í kjölfar formlegrar kvörtunar sem fyrirtækinu 365 barst frá nafntoguðum mannréttindafrömuði.

Kvörtunaraðili benti réttilega á að á vegg

 í hljóðveri útvarpsstöðvarinnar hanga siðareglur sem starfsmenn stöðvarinnar settu sér sjálfir á sínum tíma. Þar segir að siðareglunum sé ætlað að ýta undir heilindi, drengskap og feminísk viðhorf dagskrárgerðarmanna stöðvarinnar. Í g-lið 1. kafla segir enn fremur: Starfsmaður skal halda í heiðri sterk feminísk viðhorf stöðvarinnar og kann hvers kyns kvenfyrirlitning að varða sektum, sem ákvarðaðar eru af framkvæmdastjórn stöðvarinnar hverju sinni, eða brottrekstri.Kvörtunin barst í kjölfar viðtals sem var tekið í þættinum þann 22. nóvember síðastliðinn en þar talaði tónlistamaður fjálglega um kvenfólk og kynfæri. Kvörtunaraðilinn taldi manninn fá að viðra óviðeigandi hugmyndir sínar við glaðlegar og fullkomlega gagnrýnislausar undirtektir þáttastjórnenda, og enn fremur fengið að spila frumsamið lag þar sem hann lýsir þessum hugmyndum ennþá nánar.

X-ið 977 og dagskrárgerðarmenn Harmageddon harma þessi augljósu mistök. Harmageddon er útvarpsþáttur sem hefur það hlutverk að spyrja gagnrýnna spurninga. Í þessu tilviki þykir ljóst að ekki var staðið undir því hlutverki.

Umsjónarmenn Harmageddon munu af þessum sökum láta tímabundið af störfum og þar með gert að axla ábyrgð á óvönduðum vinnubrögðum.

Virðingarfyllst,
Yfirstjórn X-ins 977

Við hjá Hún.is vonum að þetta sé einungis tímabundið enda hafa þeir strákarnir verið einlægir aðdáendur pistla okkar í langan tíma.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here