
Natasha Lyonne mætti á frumsýningu þriðju seríu Euphoria á dögunum en hún var gestaleikari í seríunni. Hún er þekktust fyrir leik sinn í American Pie og Orange is the New Black.


Í frumsýningarpartýinu sýndi Natasha furðulega hegðun en hún klæddist gegnsæjum topp og einhverskonar lífstykki.
Nokkrum klukkutímum seinna var leikkonunni vísað úr flugvélinni sem hún ætlaði að fara með frá Los Angeles til New York. Samkvæmt heimildarmönnum var Natasha með takmarkaða meðvitund í sæti sínu í fyrsta farrými og var hún það mikið útúr heiminum að ákveðið var að hún ætti að yfirgefa flugvélina. Hún fór þó fyrst á salernið og kom þaðan með poka af saltkringlum sem hún hámaði í sig.
Natasha hefur verið að berjast við fíknisjúkdóm og sagði frá því í janúar að hún hafi fallið og væri á batavegi og í seinasta mánuði þakkaði hún aðdáendum sínu, meðferðaraðilum og fleirum á samfélagsmiðlum, fyrir að styðja hana í baráttunni.
Sjá einnig:
- 7 atriði sem ber að forðast í rifrildi við maka

- Hvað segir stærð litla fingurs þíns um þig?

- Stjörnuspá fyrir nóvember 2026

- „Ég hef engu að tapa lengur!“ – Aldís er hætt að hlífa ofbeldismanni sínum

- Lýst eftir Halldóri Inga

- Það eru til leiðir til að takast á við króníska verki


Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














