Heit kaka með ávöxtum og súkkulaði

Gott er að hafa ís eða þeyttan rjóma með þessu hnossgæti

Hér er uppskrift af gamalli og góðri köku sem er klassísk. Hún er venjulega með niðursoðnum ávöxtum og er gott ef notaðar eru ferskjur að skera þær niður. Eins má nota epli enn þá þarf að sjóða aðeins upp á þeim fyrst. Hún er best volg ekki alveg sjóðandi heit. Þetta er stór uppskrift og það er í góðu lagi að helminga hana niður. En hún er einföld og fljótlegt að skella í hana og það er kostur.

Heit kaka með ávöxtum og súkkulaði

2 bolli hveiti
2 bolli sykur
1 tsk salt
2 tsk lyftiduft
3 egg
100 gr súkkulaðidropar
1 dós kokteilávextir eða ferskjur(safi og ávextir)  allt úr dósinni
Öllu blandað saman og sett í smurt eldfast mót eða gott form.
1 bolli púðursykur
1 bolli kókosmjöl

Þessu tvennu er blandað saman og stráð yfir deigið í mótinu og bakað við 180°c í 40-50 mínútur.
Borið fram með þeyttum rjóma og það er alveg sérlega gott að borða þetta með ís.

SHARE