Hinsegin dagar hefjast í dag – Sjáðu dagskrána hér

Sex daga litrík hátíð í Reykjavík. Menning, mannréttindi og margbreytileiki á Hinsegin dögum

Hinsegin dagar hefjast í Reykjavík í dag en hátíðin stendur til sunnudagsins 10. ágúst. Dagskrá Hinsegin daga er fjölbreytt sem aldrei fyrr, en hátíðin hefst með hópferð í Blóðbankann við Snorrabraut á hádegi í dag. Markmið heimsóknarinnar er að minna á að karlmönnum sem stundað hafa kynmök með einstaklingi af sama kyni er óheimilt að gefa blóð. Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, og formaður Hinsegin daga, Eva María Þórarinsdóttir Lange, munu leiða blóðgjöfina. Síðdegis mun blaklið Íþróttafélagsins Styrmis mæta liði borgarfulltrúa í Nauthólsvík. Dagskrá kvöldsins lýkur svo með heimildarmyndinni Intersexion í Bíó Paradís í samstarfi við Intersex Ísland en Kitty Anderson mun sitja fyrir svörum að sýningu lokinni.

Af þeim viðburðum sem framundan eru í vikunni má nefna tónleikana Dívur og Dýfur í Sundhöll Reykjavíkur á morgun, tónleika Hinsegin kórsins, hinsegin göngu um Grasagarðinn, ýmsa fyrirlestra og pallborðsumræður og siglinguna Stolt siglir fleyið mitt frá gömlu höfninni í Reykjavík. Að ógleymdri opnunarhátíð í Hörpu, fjölskylduhátíð í Viðey og sjálfri gleðigöngunni og útitónleikum á Arnarhóli á laugardag. Á Arnarhóli munu ýmsir þjóðþekktir listamenn stíga á stokk, en þar má nefna Pál Óskar, Siggu Beinteins, Felix Bergsson, Lay Low og fleiri.

Hinsegin dagar hafa verið árviss viðburður í Reykjavík frá árinu 1999. Sögu hátíðarinnar má þó rekja aftur til áranna 1993 og 1994 þegar frelsisgöngur homma og lesbía gengu um miðborgina og kröfðust atvinnuöryggis og almennrar viðurkenningar í samfélaginu. Gríðarlega margt hefur áunnist í baráttu hinsegin fólks hér á landi á undanförnum árum – en betur má ef duga skal. Í könnun sem Samtökin ’78 létu gera síðastliðinn vetur kom í ljós að rúm 80% svarenda höfðu orðið fyrir aðkasti vegna kynhneigðar sinnar eða kynvitundar, fengið óviðeigandi spurningar eða athugasemdir, heyrt fordómafulla umræðu eða lent í einelti – og meirihlutinn á síðustu þremur árum.

Við höldum Hinsegin daga til að gleðjast og fagna þeim sigrum sem hafa áunnist en einnig til að minna okkur á það að á meðan einstaklingar mæta enn aðkasti og fordómum vegna kynhneigðar og kynvitundar, hvar sem er í heiminum, er baráttunni hvergi nærri lokið.

Nánar á www.reykjavikpride.com og www.facebook.com/reykjavikpride.

Gleðilega hátíð!

Screen Shot 2014-08-05 at 10.06.15 AM

SHARE