Hjartavandamál algengasta dánarorsökin á ferðalögum

Það er að mörgu að hyggja áður en haldið er í fríið á framandi slóðir og eitt af því sem rétt er að huga að er heilsufarið og fullvissa sig eins og hægt er að allt sé með felldu. Það virðist nefnilega vera þannig að hjartavandamál séu ein aðal dánarorsök ferðamanna á ferðalögum.

Á meðan streitufrítt umhverfi sumarfrísins virðist ólíklegur staður til að hrinda af stað hjartaáfalli, vara sérfræðingar við því að mannfjöldi, mengun, mikill hiti, mikill kuldi, framandi matur, mikil áfengisneysla og mikil hreyfing geti ýtt undir slík veikindi.

Má þar meðal annars nefna einn frægan, sópranóleikarann James Gandolfini sem lést á síðasta ári í Róm og er talin hafa fengið hjartastopp.

Samkvæmt rannsókn sem birt var 2003 í tímaritinu Psychosomatic Medicine kemur fram að í sumrafríum gerum við oft á tíðum hluti sem við erum ekki vön að gera og það geti aukið bæði líkamlegt og andlegt álag og streitu.

Þar er því haldið fram að þessar aðstæður geti framkallað hjartaáföll eða önnur lífshættuleg hjartavandamál.

Jafnframt getur fólk komist í óheilbrigt uppnám þegar draumafríið stendur ekki undir þeim væntingum sem lagt var upp með.

Í þessari rannsókn voru skoðaðir 92 Hollendingar sem fengið höfðu hjartaáfall á meðan þeir voru í fríi.

Í grein sem birtist í Life Science um málið kemur fram að meiri líkur væru á hjartaáföllum fyrstu tvo dagana í fríinu en aðra daga.

Haft er eftir raflífeðlisfræðingnum Dr. Erik Altman sem er forstöðumaður við North Shore-Long Island Jewish Southside sjúkrahúsið í New York, að fleiri og fleiri sannanir bendi til þess að það sé ekki óalgengt að fólk fái hjartaáföll á ferðalögum.

Hann bætir við „Það er mikilvægt að benda fólki á að huga að líkamlegu og andlegu ástandi áður en haldið er af stað í sumarleyfi.

Þegar við erum lögð af stað í fríið erum við ennþá í áhættu á hjarta og æðasjúkdómum.“

Dr. Altman segir líka að ástæðurnar geti verið þær að fólk á ferðalögum borði of mikið, drekki of mikið áfengi og gleymi jafnvel að taka lyfin sín.

Dr. Altman segir jafnframt að þó hjartaáföll séu ekki óalgeng í fríum fólks þá sé það þannig að fólk sem tekur sér reglulega frí er í minni áhættu á að deyja úr hjarta og æðasjúkdómum.

Hann mælti jafnframt með því að fólk sem eigi við heilsufarsvanda að stríða, aðlagi fríið að sínum þörfum og getu.

Það er því aldrei of varlega farið og rétt að hafa vaðið fyrir neðan sig.

Björn Ófeigs

Birt með góðfúslegu leyfi Hjartalíf. Á hjartalíf.is er að finna margar frábærar greinar sem tengjast hjartanu og hjartaheilsu

SHARE