Hjólahillur

Ef þú ert í vandræðum með að koma hjólinu þínu fyrir skaltu ekki örvænta því lausnir eru til á öllum vandamálum. 
Chris Brigham hannaði þessa snilldarhillu undir reiðhjól sem hægt er að hengja upp þar sem pláss leyfir. Líka er hægt að nýta hilluna undir bækur eða annað smádót. Ekki veit ég hvort hún fáist hér á landi en hægt er að panta hana á Netinu hjá Knife & Saw.

SHARE