
Það hafa margir séð heimildarmyndina The Investigation of Lucy Letby á Netflix, en hún fjallar um hina 36 ára gömlu Lucy Letby sem situr nú inni fyrir að hafa myrt 7 börn á Countess of Chester spítala í Englandi, og tilraun til morðs á 6 börnum í viðbót. Morðin áttu sér stað frá júní 2015 til júní 2016.
Í myndinni eru birt, áður óséð, myndbönd af Lucy við handtöku hennar og yfirheyrslum yfir henni.
Samfangi Lucy í HMP Bronzefield fangelsi hefur nú haft samband við The Mirror og sagt frá því hvernig er að umgangast hjúkrunarfræðinginn dagsdaglega.
„Hún er einkennileg, eiginlega stórskrýtin. Hún virðist ekki hafa mikla samkennd. Hún er ekki vinaleg og virðist í raun mjög feimin, en hún hjálpar til þegar hún getur. Hún er bara einkennileg og lítur einkennilega út. Þegar hún heldur að enginn sé að horfa á hana, starir hún á fólk,“ segir samfanginn.
Samkvæmt fanganum er Lucy alltaf „vælandi“ yfir lífinu og getur ekki gengið um gangana ein, heldur þarf alltaf að hafa fangavörð með sér: „Lucy þarf að vera með vörð með sér öllum stundum. Hún er talin hættuleg en einnig getur hún verið skotmark fyrir aðra fanga.“
Samkvæmt fanganum er „besta vinkona“ Lusy, Beinash Batool, sem situr inni fyrir að myrða 10 ára gamla stjúpdóttur sína á heimili sínu árið 2023. Þær eru báðar með lífstíðardóm.
Sjá einnig:
- 7 atriði sem ber að forðast í rifrildi við maka

- Hvað segir stærð litla fingurs þíns um þig?

- Stjörnuspá fyrir nóvember 2026

- „Ég hef engu að tapa lengur!“ – Aldís er hætt að hlífa ofbeldismanni sínum

- Lýst eftir Halldóri Inga

- Það eru til leiðir til að takast á við króníska verki















