Hún elskar Instagram: Guðdómlegir plötuspilarar #recordplayer

Velkominn í paradís tónlistarunnenda; þar sem vinyllinn gælir við skilningarvitin og guðdómlegar melódíur ráða ríkjum. Þessi þáttur er ekki fyrir þá veiklyndu; fólk sem fúlsar við hljómgæðum. Hér er háalvarleg stúdía á ferðum, sjálf hljómplatan eins og hún birtist mér sem barni. 

Ég man enn eftir fyrstu hljómplötunni sem ég heyrði móður mína spila. Donna Summer var á umslaginu. Næst kom Barbra Streisant og í kjölfarið Nina Hagen. Í þá daga var B-hliðin raunveruleg og geymdi þau lög sem komust ekki á A-hliðina. Aukalögin sem oft slógu óvart í gegn og urðu vinsæl, þvert á völuspár útgefenda.

Á daglegu ferðalagi mínu um Instagram rakst ég á tvö myndbönd sem sýna guðdómlegt ferlið og svo einnig samansafn mynda sem sýna plötuspilara í allri sinni dýrð. Vinyllinn lifir og það góðu lífi. Smelltu á myndböndin hér að neðan og gættu vel að galleríinu sem finna má neðst – til að líta augum dýrðina, hinn goðumlíka vinyl.

 

Fyrst tekur hann umbúðirnar af kassanum og stingur plötuspilaranum í samband: 

 

 

“Varlega tók ég viðkvæman vinylinn úr umslaginu með tveimur fingrum, dustaði rykið af nálinni og lagði pressaða plötuna vandlega á fóninn. Lyfti upp hausnum og lagði á svartan vinylinn. Dularfullan og dreyminn.  Vinyllinn er lagskiptur og felur í sér loforð og lystisemdir.”

[new_line]

Því næst setur hann plötuna á fóninn, tekur hulstrið af nálinni og heilsar Meistara Hayes: 

 

Smelltu á “hashtöggin” hér að neðan til að stúdera hljómplötur og plötuspilara á Instagram …

#recordplayer – #vinylrecords – #vinyl – #crosley 

Hún er á Instagram – smelltu hér

Instagram

 

SHARE