Þetta er Stella litla. Hún fyrirlítur ananas. Þolir ekki ananas. Henni býður við ananas!
Stella lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Sértaklega þegar ananas á í hlut! Ananas kann að vera saklaus ávöxtur í þínum augum, en að mati Stellu er ananas handbendi hins illa.
Sjáið hvernig Stella bregst við þegar ananas birtist í eldhúsinu.
Takt’ann Stella! Áfram Stella!
Tengdar greinar:
Hundur sem elskar „Let it go“
Sakbitni hundurinn snýr aftur
Hann elskar að láta baða sig!
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.