Húsráð: Þrif á helluborðum

Margir eru með svona helluborð á heimilinu. Það kannast vafalaust margir við að vera í vandræðum með að ná borðinu almennilega hreinu eftir að soðið hefur uppúr nokkrum sinnum. Það situr oft eitthvað eftir sem er erfitt að ná í burtu.

Það er best að þurrka alltaf af helluborðinu eftir hverja notkun. Það kemur í veg fyrir að óhreinindin safnist upp.

Hér er uppskrift af náttúrulegri lausn sem virkar vel til að hreinsa keramikhelluborðið eftir hverja notkun.

Þú þarft:

  • Úðabrúsa
  • Edik
  • Rakan míkrófíber klút
  • Þurran míkrófíber klút

Aðferð:

  1. Leyfðu helluborðinu að kólna alveg. Flest helluborð sýna ljós á meðan einhver hiti er ennþá. Bíddu þangað til ljósið er farið.
  2. Fylltu úðabrúsann af ediki
  3. Sprautaðu ediki á helluborðið
  4. Þurrkaðu yfir með rakri tusku
  5. Pússaðu borðið með þurru tuskunni

Sjá einnig: Húsráð: Þrifið með stálull

Dýpri þrif á helluborðinu

Hér er lausn sem er góð þegar þú vilt ná einhverju pikkföstu af borðinu.

Þú þarft:

  • Úðabrúsa
  • Edik
  • Matarsóda
  • Gamalt handklæði, vætt með heitu vatni
  • Rakan míkrófíber klút
  • Þurran míkrófíber klút
  • Rakvélablað eða málningarsköfu

Aðferð:

  1. Leyfðu helluborðinu að kólna alveg. Flest helluborð sýna ljós á meðan einhver hiti er ennþá. Bíddu þangað til ljósið er farið.
  2. Fylltu úðabrúsann af ediki.
  3. Spreyjaðu VEL af ediki á helluborðið.
  4. Stráðu matarsóda yfir edikið á borðinu.
  5. Vættu handklæðið með heitu vatni og leggðu það ofan á edik/matarsódablönduna ofan á helluborðinu.
  6. Leyfðu því að liggja á í 10-15 mínútur.
  7. Taktu handklæðið af og notaðu blautu míkrófíberklút til að þurrka matarsódablönduna af. Matarsódinn mun ekki rispa borðið.
  8. Þegar matarsódinn er farinn notarðu hnífinn/málningarsköfuna til að ná restinni af.
  9. Að lokum þurrkarðu svo yfir allt saman með þurra míkrófíberklútnum.

Heimildir: diynetwork.com

SHARE