Hvað er POTS sjúkdómur? – Einkenni og úrræði

POTS stendur fyrir Postural Orthostatic Tachycardia Syndrome – á íslensku mætti kalla þetta sjúkdóm sem veldur hraðslætti við stöðu.

POTS er taugasjúkdómur sem hefur áhrif á blóðflæði og veldur yfirliði og sundli.

Einkenni POTS:

  • Hjartsláttur eykst óeðlilega mikið (oft >30 slög á mínútu) þegar einstaklingur stendur upp.
  • Svimi, yfirlið eða óstöðugleiki við að standa.
  • Þreyta og orkuleysi.
  • Höfuðverkur, heilaþoka, einbeitingarerfiðleikar.
  • Kuldatilfinning í útlimum, stundum meltingartruflanir.

Orsakir og áhættuþættir:

  • Orsakirnar eru ekki fullkomlega þekktar, en talið er að þær tengist truflun í blóðflæði, hormónastjórnun og taugakerfi.
  • Sjúkdómurinn kemur oft fram hjá ungu fólki, sérstaklega konum á aldrinum 15–50 ára.
  • Getur stundum fylgt eftir veirusýkingu, slysi eða öðrum sjúkdómum (t.d. Ehlers-Danlos heilkenni eða sjálfsofnæmissjúkdómum). Einnig hefur borið á aukningu á greiningum í kjölfa Covid-19.

Meðferð:

  • Engin ein lækning, en einkennum má stjórna.
  • Aukin vökvainntaka og salt, stuðningssokkar og regluleg, mild hreyfing hjálpa mörgum.
  • Lyf geta verið notuð til að stjórna hjartslætti eða blóðþrýstingi.
  • Meðferð er einstaklingsbundin og miðar að því að bæta lífsgæði.

SHARE