„Hvað hef ég gert til að eiga þetta skilið?“

Kona nokkur deildi þessari fallegu frásögn á Facebook í dag og okkur fannst allir þurfa að sjá þetta. Við viljum líka hvetja sem flesta, sem það geta, til að gera eitthvað góðverk fyrir náungann og sýna hvort öðru kærleika á aðventunni.

Gefum Guðrúnu Brynjólfsdóttur orðið:

Ég sat úti í bíl seinnipartinn í dag eftir eina búðarferðina í Bónus, hágrátandi og gat ekki hætt. Ástæðan var ekki sú að ég væri sorgmædd eða óhress, heldur ég hafði upplifað góðverk sem kom heldur betur flatt upp á mig. Ég var að versla og það var ung kona á undan mér. Hún var ekki að kaupa neina matvöru, heldur gjafabréf og bauð mér að vera á undan sér á meðan hún beið eftir þjónustu. Ég þáði það, og renndi vörunum mínum í gegn, nema ég gleymi smotterý og fæ að hlaupa inn í búð að sækja það. Þegar ég kem til baka er verið að afgreiða ungu konuna og vörurnar mínar biðu skannaðar við endann á afgreiðsluborðinu fyrir utan það sem ég hafði gleymt inni í búð sem átti eftir að skanna. Ég beið því bara og bað svo unga manninn að bæta þessu við það sem ég átti eftir að borga. “Nei, það er búið að borga matinn – konan á undan þér ákvað að borga þetta líka” HA! Ó jeminn, hún hefur óvart verið rukkuð fyrir minn part – segi ég í geðshræringu og fannst það skelfilegt að ókunnug kona hefði verið rukkuð fyrir matinn minn. “Nei, hún sagði að hún ætlaði að borga þetta” segir ungi drengurinn á kassanum .. Ég hleyp því út og leita að konunni, því ég vildi millifæra á hana .. Fann hana ekki í myrkringu .. Miður mín .. En svo kemur hún keyrandi – ég veifa henni og bið hana að stoppa – segi við hana “heyrðu elskuleg, ég held að þú hafir verið rukkuð fyrir matinn minn, ég vill fá að borga þér” – Nei alls ekki, segir hún. Ég ætlaði að borga þetta. “Nú? segi ég stamandi af undrun, afhverju”? – Bara afþví bara segir hún brosandi og segir svo bara Gleðileg jól. Ég stari á hana undrandi og spyr eins og fáviti .. hvað á ég að segja við þig eiginlega .. – Segðu bara takk og Gleðileg jól Svo brosti hún bara og keyrði í burtu á meðan ég stamaði Takk og eitthvað .. sem ég ég skyldi ekki einu sinni sjálf .. Hún valdi mig til að gleðja þennan dag ❤ Ég settist inn í bíl og hágrét á meðan ég sagði frá þessu á Instagram. Ég vona að hún sjái mögulega þessa færslu. Við ungu konuna langar mig að segja. TAKK fyrir mig ❤ Þú þurftir ekki að gera þetta, en gerðir af góðmennsku og hjartagæsku. Það kann ég að meta og mun taka þetta góðverk lengra með því að gera það sama fyrir einhvern annan í jólamánuðinum. Einhvern sem ég þekki ekki neitt, og valin af handahófi. Þú elsku stelpa settir eitthvað af stað sem vonandi margir taka sér til fyrirmyndar. Ég dáist að þér og þakka fyrir fólk í þessum heimi eins og þig. Þú ert raunverulega einhver sem breytir lífi fólks til hins betra. Ég þekki þig ekki neitt – en í mínum huga ertu mikilvæg og dásamlega falleg manneskja ❤ Myndina tók ég af mér grátandi í bílnum því ég vissi ekki hvað ég átti að gera eða segja. #Fallegtfólk#jólagóðverk#payitforward Ps. Endilega hjálpið mér að deila þessu sem víðast svo hún sjái þetta vonandi

https://www.facebook.com/gudrunonline/posts/10158696040595340

SHARE