Hvers vegna táfýla?

Táfýla kemur vegna samspils fótasvita og baktería. Það eru náttúrlegar bakteríur  á fótum,sérstaklega á milli tánna, sem sjá m.a. um að brjóta niður dauðar húðfrumur. Við það niðurbrot verður til vond lykt  sem líkist lykt af gömlum ost, ammoníaki eða ediki. Fótasviti myndar kjöraðstæður fyrir þessar bakteríur til að fjölga sér óhóflega en svitakirtlar eru hlutfallslega flestir á höndum og fótum. Það er því mikilvægt að loka ekki fyrir fótasvitann með skóm eða sokkum sem ekki hleypa raka í gegn og ýta þannig undir fjölgun baktería.

Aðrar ástæður táfýlu eða óeðlilega mikillar svitamyndunar geta  verið arfbundnir þættir (hyperhidrosis) sem þarf þá læknismeðferðar. Álag,sýking, sum lyf, vökvaskortur og hormónabreytingar geta einnig haft áhrif á svitamyndun og lykt.

Fyrirbyggjandi leiðir

  • Alltaf vera í sokkum þegar lokaðir skór eru notaðir
  • Nota þykka bómullar-eða ullarsokkar sem hleypa raka í gegn
  • Skipta um sokka a.m.k. daglega. Þegar farið er í sokka frá deginum áður fara þeir að lykta þegar þeir hitna
  • Þvo sokka á röngunni til að ná betur að húðflygsum og dauðum bakteríum
  • Daglegt fótabað í volgu vatni og mildri sápu. Þurrka vel á milli tánna og leyfa að lofta á eftir.
  • Nota barnapúður eða fótapúður (talkum) eftir fótabað sem einnig má setja í skóna til að þurrka þá.
  • Ekki nota sömu skó tvo daga í röð. Láta skóna þorna í 24 klst á milli notkunar,taka út innlegg og láta lofta um þau
  • Taka af sér skóna við öll tækifæri
  • Þvo skó reglulega ,ef má í þvottavél. Nota Rodalon. Ef táfýlan fer ekki,henda skónum.

Önnur meðferð

Sumum hefur reynst vel að fara í fótabað í sterkri svartri teblöndu 30 mínútur á dag í viku. Sýran í teinu drepur bakteríar,lokar svitaholum og heldur fótunum þurrum lengur. 2 tepokar með svörtu te í einum líter af vatni soðið upp í í 15 mín. Þynnt síðan út með hálfum líter vatns.

Einnig er hægt að prufa edikfótabað,með einum hluta ediks á móti tveimur hlutum vatns.

 

SHARE