Írsk kjötkássa

Ég er alger sökker fyrir góðum pottréttum og inn á heimasíðu Allskonar.is fann ég þessa girnilegu uppskrift. Ég ætla að skella í þennan pottrétt um helgina og efast ekki um að hann sé geggjað góður miðað við hráefnið!

Þú þarft að nota pönnu eða pott sem þolir að fara inn í heitan ofn með loki, 3-4L pottur dugar vel.

Irish stew fyrir 4

Uppskrift:

  • 750gr nautakjöt, í bitum
  • 4 msk hveiti
  • 1 tsk svartur pipar
  • 1 tsk cayenne pipar
  • 2 tsk salt
  • 2 msk olía
  • 4 gulrætur, skornar í stóra bita
  • 3 sellerístilkar, skornir í stóra bita
  • 5 skallottulaukar, flysjaðir og skornir í tvennt
  • 3 hvítlauksrif, marin
  • 3 msk tómatpúrra
  • 6 msk balsam edik
  • 2 msk Worchestershire sósa
  • 2 lárviðarlauf
  • 8 dl vatn
  • 2 teningar nautakjötkraftur
  • 1 tsk timian, þurrkað (eða 1 grein, ferskt)
  • 8 litlar kartöflur, flysjaðar

Undirbúningur: 20 mínútur

Eldunartími: 3 1/2 klukkustund

Aðferð:

Byrjaðu á að hita ofninn í 170°C.

Blandaðu saman í djúpan disk hveitinu, salti, pipar og cayenne piparnum. Veltu kjötbitunum upp úr hveitiblöndunni.

Hitaðu olíu á meðal hita í pönnu og brúnaðu kjötið, í 4-5 mínútur. Þú gætir þurft að gera þetta í nokkrum skömmtum ef potturinn er ekki mjög stór.
Settu kjötið til hliðar og bættu örlítilli olíu við í pönnuna, settu gulræturnar, sellerí, lauk og hvítlauk út í og brúnaðu, þetta tekur um 10 mínútur.
Ýttu grænmetinu örlítið til hliðar í pottinum og settu nú tómatpúrruna út í, steiktu hana í hálfa mínútu eða svo og hrærðu svo öllu vel saman þannig að púrran blandist vel um allt grænmetið.
Bættu balsam ediki við og láttu malla í 2-3 mínútur. Settu nú Worchestershire sósuna, lárviðarlaufin, timian, vatn og kjötkraft í pottinn og láttu suðuna koma upp. Settu lok á pönnuna, slökktu undir og færðu inn í ofninn miðjan. Láttu eldast í ofninum í 2 1/2 – 3 klst.

Settu kartöflurnar út í þegar eru 40 mínútur eftir af eldunartímanum – þú getur líka soðið þær sér ef það hentar betur, og bætt út í þegar þú tekur pottréttinn út úr ofninum.

Berðu fram í djúpum diskum – og ekki er verra ef til er nýbakað brauð til að þurrka upp sósuna.

Gott rauðvín toppar þetta.

Verði ykkur að góðu!

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here