Er þetta nýji kærastinn hennar J-Lo?

Varla hefur hjónasængin kólnað milli þeirra J´Lo og Casper fyrr en dívan er komin í arm annars manns og í þetta skiptið er það algert leyndarmál, en J´Lo segir þau Maksim-Chmerkovskiy „BARA” vera vini, þó opinber atlot þeirra beri merki um annað.

 

article-2665248-1F05D38200000578-200_634x918
Maksim, hér myndaður á götum Hollywood fyrr á þessu ári – sjóðheitur með innkaupakerruna

 

Maksim, sem þekktur er úr þáttaröðinni Dancing With The Stars hefur þvertekið fyrir sögusagnirnar og segir „engum koma það við hvaða konur hann gerir sér dælt við” en þau Jennifer hafa í nokkrar vikur verið orðuð við hvort annað.

 

Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ birti þessa mynd af „vinunum” á næturklúbbi um helgina:

 

article-2666619-1F1029E400000578-923_634x421

Jennifer (J´Lo) sleit nýverið sambandi við unga dansarann Casper, en orsök sambandsslitanna mun hafa verið hliðarspor Casper og raknaði upp úr kærleikanum í kjölfarið. Hin 44 ára gamla díva virðist þó ekki hafa verið lengi að taka upp þráðinn í einkalífinu og láta fjölmiðlar vestanhafs ekki undan þeim getgátum að hún sé tekin saman við hinn 34 ára gamla dansara, sem þykir ólíkt myndarlegri og nær dívunni í aldri.

 

Hverju sem líður er eitt á hreinu: Maðurinn er sjóðheitur!

 

article-2665248-1F05D37400000578-94_634x708
Ef satt reynist er J´Lo kominn með nýjan elskhuga – og hann er dansari að atvinnu í ofanálag.

 

SHARE