Jóhanna Guðrún: „Gamall draumur að rætast“

Fáir vita að Helgi Ómars ljósmyndari og Jóhanna Guðrún söngkona eru virkilega góðir vinir. Það er því ekki leiðinlegt að skoða skemmtilegar myndir sem Helgi Ómars tók af dansæfingu hjá Jóhönnu Guðrúnar og Maxim Petrov sem eru að undirbúa sig fyrir lokakvöldið á þættinum Allir geta dansað sem er á dagskrá í kvöld, 6.maí á Stöð 2.

Við spyrjum Jóhönnu út í þá ákvörðun að taka þátt í dansþættinum Allir geta dansað sem er á dagskrá á Stöð 2.

„Ég hef alltaf haft mikla unun af því að dansa og hefði líklega æft dans þegar ég var yngri ef ég hefði ekki verið svona upptekin í söngnum og einnig hestunum, svo það er stór draumur að rætast að fá að læra alla þessa dansa. Ég er hins vegar mikil keppnismanneskja og legg mig því alla fram til þess að gera þetta 100%, það er búið að vera ótrúlega gaman að taka þátt og var markmiðið að komast í lokaþáttinn, svo ég er mjög glöð að hafa náð því. Þegar því markmiði var náð þá viðurkenni ég alveg að ég væri alveg til í að taka glimmerbikarinn heim og klára þetta með stæl“.

 

Jóhanna Guðrún er trúlofuð gítarleikaranum og kórstjóranum Davið Sigurgeirssyni og eiga þau saman dótturina Margrét Lilju, tveggja ára og hundana Bjart og Dívu. Davíð og Jóhanna Guðrún kynntust í tónlistinni og vinna mikið saman.

„Við eigum alveg sérstök tengsl þegar kemur að tónlistinni og því forréttindi að við Davíð getum unnið svona mikið saman, sérstaklega þegar mikið er að gera og jafnvel erfitt að finna stundir fyrir venjulegt heimilislíf“.

Við kveðjum Jóhönnu Guðrúnu sem er að hefja æfingu með dansþjálfara sínum Max Petrov.

„Við erum með tvo dansa í lokaþættinum Paso doble og Samba, stífar æfingar og vonandi náum við að heilla þjóðina, þar sem stig dómara hafa ekki áhrif í lokaþættinum, Allir að kjósa!“ segir Jóhanna Guðrún að lokum.

SHARE