Jóladagatal 17. desember – Úr frá Thomas Stone

Tíminn líður á ógnarhraða eftir því sem nær dregur jólunum. Nú eru aðeins 6 dagar til jóla og það er um að gera að nota helgina í að klára síðustu jólagjafirnar, baka smákökur og svo auðvitað að kveikja á 4. aðventukertinu á sunnudaginn.

Við hjá Hún.is höfum alltaf gaman að því þegar íslenskir hönnuðir koma með flottar vörur á markaðinn. Við tókum því auðvitað eftir því þegar Thomas Stone úrin komu í sölu nýlega. Að baki þessari hönnun eru þrír vinir með ólíkan bakgrunn. Þeir eiga það samt sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á úrum og hönnun ýmissa fylgihluta.

Eftir margra mánaða undirbúningsvinnu og heilabrot fæddist fyrsta gerð Thomas Stone úralínunnar, The Marble Classic. Markmið þeirra er að hanna og framleiða vönduð og klassísk gæða úr á viðráðanlegu verði. Þeir fengu til liðs við sig frábæra hönnuði og vörumerkjahönnuði til að taka þátt í ferlinu með þeim og útkoman varð framar þeirra vonum.

Í dag ætlum við á Hún.is að gefa einum heppnum aðila úr frá þessu flotta nýja merki.

thomasstonefdafd

 

TS silfur marmara – TS rósa marmara – TS gull marmara – TS silfur marmara  

Ef þig langar í svona fallegt úr er það eina sem þú þarft að gera er að skrifa hér fyrir neðan „Thomas Stone já takk“ og hvaða týpu þig langar mest í og þú gætir orðið heppin/n.

Einnig hjálpar það til ef þú deilir jóladagatalinu með vinum þínum og splæsir í „like“ á Thomas Stone.

Við drögum út í fyrramálið og við hvetjum þig til að taka þátt og freista þess að fá úr að gjöf!

SHARE