Kannast ekki allir við þetta?

Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana til að fá kalíum.
Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án
sykurs, til þess að forðast sykursýki.
Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót.

Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem
tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það).
Á hverjum degi,borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað
gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag mun það hafa
skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.

Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og
drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi.
Og annað hvítt fyrir taugakerfið.
Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera.
Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red
Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú
ert þá búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því.
Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú
kúkar heilli peysu. Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag,
hollar fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum.

Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða.
Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.
Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta ; á eftir eplinu,
tannbursta ; á eftir banananum, tannbursta …
Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma
tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli.
Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín,
því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar,
tennurnar…

Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm
sem fara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu
þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá
þann daginn.

Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp og
ekki gleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í svoeiðis, því daglega
áttu að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við
eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).

Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að
vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú
ferð í frí.

Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og
eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.

Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera
frumlegt og skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!!
Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!!
Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir
hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í
sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?

Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin
á þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu.
Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig
lítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu með
tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með
makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á
meðan þú burstar tennurnar.

Var ein hendi laus?

Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!

Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að
halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann
með jógúrtinu.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here