Kardashian fjölskyldan fjölgar sér

Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian er samkvæmt slúðurtímaritinu Us Weekly ólétt af sínu þriðja barni. Þetta greindi tímaritið frá í morgun en Kourtney á fyrir tvö börn með kærastanum sínum til margra ára Scott Disick.
Parið var nýverið í New York ásamt systur Kourtney, Khloe og kærasta hennar French Montana en á meðan þau drukku vín drakk Kourtney engiferöl.

Scott og Kourtney eiga fyrir Mason sem er 4 ára og Penelope sem er einunigs 23 mánaða. Kourtney hefur alltaf talað opinberlega um að vilja stóra fjölskyldu.

u1009_COVER-467

SHARE