Kendall Jenner mætti nærbuxnalaus á rauða dreglinum

Yngstu systurnar úr Kardashian fjölskyldunni hafa aldeilis skotið sér upp á stjörnuhimininn. Þær Kendall Jenner og Kylie Jenner vekja mikla athygli sem tískufyrirmyndir enda báðar miklir tískuunnendur enda ekki ólíkar eldri systrum sínum.

Kendall hefur verið að gera það gott sem módel en hún hefur kosið að gefa ekki upp eftirnafn sitt er hún reynir að bóka störf þar sem hún vill vera metin að eigin verðleikum en ekki einugis vegna frægðar fjölskyldu sinnar.

Þær Kylie og Kendall mættu nýverið á rauða dregilinn í heldur ögrandi kjólum en Kendall klæddist kjól sem hafði tvær klaufar á skósíðu pilsinu sem náðu upp yfir mjaðma beininn svo það var augljóst að hún klæddist engum nærfatnaði. Kylie valdi öruggari kjól sem var þó afar stuttur. Báðar báru þær þó kjólana afar vel.

muchmusic-video-awards-2014-kendall-kylie-jenner-red-carpet__oPt

 

ap633585906873111__oPt

SHARE