Kim er fúl yfir fyrsta orðinu hans Saint West

Kim er aldeilis ekki glöð með fyrsta orðið sem 7 mánaða gamall sonur hennar, Saint West sagði nýverið. Maður hefði haldið að hún yrði glöð að heyra að sonurinn hafði sagt fyrsta orðið, en þar sem það var ekki henni að skapi, var gleðin dauf.

Sjá einnig: Kanye fór í fýlu við Kim á Íslandi

Kim var stödd úti á lífinu í Las Vegas þegar hún fékk fréttirnar. Sonur hennar hafði sagt orðið dada nokkrum sinnum, en hana langaði til að fyrsta orðið hans yrði momma. Kanye sagði eiginkonu sinni að hann hafði sagt honum að segja þetta og það virkaði svo glimrandi vel.

Kanye fékk líka að heyra fyrstur manna fyrstu orð dóttur sinnar North og sagði hún einmitt þá dada líka, en Kim langaði svo mikið að það væri örðuvísi í þetta skiptið.

Það sem stjörnurnar setja fyrir sig er stundum svolítið merkilegt.

Saint-West

SHARE