Kim Kardashian er búin að eiga en hún eignaðist litla stúlku í morgun, 5 vikum fyrir tímann. Móður og barni heilsast vel.
Kærastinn hennar, Kanye West, var allan tímann við hlið sinnar heittelskuðu. Samkvæmt heimildum TMZ afboðaði Kanye sig í sínu eigin partýi í gærkvöldi því Kim leið ekki nógu vel.