Kim Kardashian vill vera flottari en Khloe

Kim Kardashian hefur alltaf verið þekkt fyrir línur sínar og hlotið mikið lof og athygli fyrir þær. Það fer í taugarnar á henni hvað Khloe hefur verið að fá mikla athygli eftir að hún fór að æfa eins og vitleysingur. Margir hafa talað um að Khloe sé mesti kroppurinn af þeim systrum og það ætlar Kim ekki að láta viðgangast.

 

Sjá einnig: Kim Kardashian er með leyndan hæfileika

Auðvitað samgleðst Kim systur sinni en hún ætlar samt að taka sig enn meira á og ætlar að komast í betra form en Khloe.

„Kim og Khloe hafa alltaf verið í mikilli innbyrðis keppni sín á milli. Kim hefur alltaf verið drottningin. Hún hefur verið sætust, vinsælust og með flottustu strákunum,“ segir heimildarmaður HollywoodLife.

„Þetta gerði Khloe klikkaða úr afbrýðisemi þegar þær voru að alast upp,“ sagði þessi heimildarmaður einnig. „Núna er fólk að missa sig yfir því hversu vel Khloe lítur út og það pirrar Kim svakalega. Hún ætlar að taka mataræði sitt enn fastari tökum, en það hefur verið erfitt seinustu mánuði því margt hefur verið í gangi.“

 

SHARE