![Screenshot 2021-01-12 at 12.02.38](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/Screenshot-2021-01-12-at-12.02.38-640x482.jpg)
Það átti stað hræðilegt atvik um helgina í New York borg. Lögreglan í borginni fékk símtal þar sem tilkynnt var að kona hefði hoppað niður af 12. hæð í íbúðabyggingu og haft 5 ára gamalt barnið sitt í fanginu.
Konan hét Oksana Patchin og dóttir hennar hét Olivia og bjuggu þær í Prospect Heights í Brooklyn. Þær voru 53. stræti, í nágrenni við Hell’s Kitchen, þegar atvikið átti sér stað og voru þær gestkomandi þar. Rétt eftir að þær komu á staðinn fóru mæðgurnar upp á þak, en Oksana kvaðst vilja sýna dóttur sinni útsýnið yfir borgina frá þakinu. Þaðan stökk hún svo og féll á gangstéttina fyrir neðan. Oksana skildi seinasta sumar og átti einhverja sögu um geðrænan vanda. Farið var yfir myndefni frá eftirlitsmyndavél og þar sést Oksana ráfa aðeins um á þakinu, klifra yfir handriðið, teygja sig eftir stúlkunni sinni og hoppa. Skelfilegur harmleikur svo ekki sé meira sagt.
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/Screenshot-2021-01-12-at-11.45.26.jpg)
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/Screenshot-2021-01-12-at-11.45.35.jpg)
Þetta gerist aðeins örfáum vikum eftir að 24 ára gömul kona stökk fram af byggingu í New York, en hún tímastillti færslu á Instagram til þeirra sem lifðu.
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/Screenshot-2021-01-12-at-11.54.31-1024x1276.jpg)
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/Screenshot-2021-01-12-at-11.53.39.jpg)
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/Screenshot-2021-01-12-at-11.52.16.jpg)
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/Screenshot-2021-01-12-at-11.52.29.jpg)