Konfekt fyrir augað

Veggfóður. Sonur Elisabeth, Otto Dunker, á heiðurinn af teikningunni af fjallinu.

Elisabeth Dunker er sænsk og hannar ótrúlega fallegar vörur undir merkinu “Fine little day” sem hún stofnaði árið 2007.  Síðan þá hefur fyrirtækið hennar vaxið og dafnað og hefur hún m.a. stofnað vefverslun þar sem hún selur einnig vörur eftir aðra hönnuði sem hún hefur boðið að hanna undir merkinu Fine little day. Hún heldur líka úti skemmtilegu bloggi þar sem hún fjallar um allt milli himins og jarðar sem varðar hönnun, list, handverk, bækur og myndlist barna svo eitthvað sé nefnt.

Hér er svo sannarlega á ferð gott konfekt fyrir augað.

Fyrir áhugasama er tengill á bloggið hennar er HÉR og vefverslunina HÉR.

SHARE