Kylie Jenner lætur elta Tyga

Það er ekki annað að sjá en að raunveruleikastjarnan Kylie Jenner sé yfir sig ástfangin af rapparanum Tyga, svona ef marka má myndskeiðin sem parið birtir reglulega á Snapchat.  En samkvæmt tímaritinu OK! er svo sannarlega ekki allt sem sýnist þegar kemur að sambandi þeirra. Í tímaritinu er greint frá því að Tyga sé að fá sig fullsaddan af því hversu kæfandi Kylie er. Svo virðist sem Kylie treysti rapparanum ekki fullkomlega og reynir hún þess vegna að fylgja honum við hvert fótmál. Og ef hún kemst ekki sjálf lætur hún aðra um að fylgjast með honum.

Stundum gengur hún víst svo langt að hún fær vinkonur sínar til þess að daðra við Tyga, til þess að sjá hvort að honum sé treystandi.

Sjá einnig: Hún prófaði að vera Kylie Jenner í viku

kylie-jenner-tyga

SHARE