Lindex hefur sölu á eigin snyrtivörulínu

Lindex á Íslandi hyggst auka vöruúrval sitt til muna með því að bjóða upp á sína eigin snyrtivörulínu – Lindex Beauty. Línan samanstendur af fallegum og hagkvæmum snyrti- og húðvörum til að fullkomna útlitið.

”Lindex Beauty er eðlileg framlenging á vöruúrvali Lindex sem beinist að konum sem hafa áhuga á tísku. Viðskiptavinum okkar er umhugað um útlit sitt og sú umhyggja nær til umhirðu um líkama og andlit. Snyrtivörur setja lokapunktinn á hvaða kvöld- eða hversdagsklæðnað sem er. Ég er virkilega stolt af úrvali lita ásamt gæðunum sem einkenna vörur okkar” –segir Inger Lundqvist, hönnunar- og innkaupastjóri fyrir Lindex Beauty.

Lindex Beauty 02

Snyrtivörulínan inniheldur maskara, augnblýanta, augnskugga, farða, púður, hyljara, kinnaliti, naglalakk, varaliti og varagloss. Til að fullkomna heildarmyndina mun Lindex Beauty línan einnig innihalda ýmis áhöld eins og bursta, plokkara, farðahreinsir og bómullarpúða.

Úr Lindex Beauty húðvörulínunni

Húðvörulínan er umhverfisvænn kostur merkt með Svaninum (s. ”Svanen”). Svanurinn leggur áherslu á að framleiðsla og innihald varanna uppfylli ströngustu kröfur m.t.t. efnisinnihalds, vatnsnotkunar, orkunýtingu og sóunar. Línan inniheldur sturtusápu, húðkrem, skrúbb, húðnæringu (e. ”body butter”), handsápu, handáburð og allt framleitt með umhverfisvænum hætti.

Öll Lindex Beauty línan er framleidd eftir ströngustu skilyrðum reglna ESB, eru ofnæmisprófaðar og ekki prófaðar á dýrum.

Þetta þykja okkur mikil gleðitíðindi og hlökkum við til að prófa!

SHARE