Lorde tekur smellinn Don’t Tell’Em í hljóðveri BBC Radio 1

Stórsöngkonan Lorde er bara 18 ára að aldri en stúlkan lítur ekki aðeins út fyrir að vera mun eldri, heldur er rödd hennar svo mögnuð og stórbrotin að engu er líkara en að hún hafi þegar lagt fleiri ár að baki í bransanum.

Lorde tók smellinn Don’t Tell’Em eftir Jeremih’s í hljóðveri BBC Radio 1 og kom öllum í opna skjöldu með dýpt og næmleika í flutningi sem er magnað á að hlýða.

Hvern hefði grunað að Lorde byggi yfir svo miklu innsæi á sviði tónlistarflutnings?

 

SHARE