
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Huldu Guðbjörgu Hannesdóttur, 18 ára, en síðast er vitað um ferðir hennar í Kópavogi eftir hádegi í dag. Óljóst er með klæðaburð Huldu, sem er með tvær fastar fléttur í hárinu, en hún gæti verið í dökkri úlpu og ljósbláum strigaskóm. Einnig er mögulegt að hún sé með tvær töskur meðferðis.
Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Huldu, eða vita hvar hana er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.















