Lýst eftir Irenu Lilju – Sást seinast fyrir viku

Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Irenu Lilju Haraldsdóttur. Irena er 35 ára, dökkhærð með axlasítt hár, grannvaxin um 182 cm á hæð, með blá augu. Er með húðflúr fyrir neðan hægra eyra. Síðast er vitað um Irenu s.l. fimmtudag, 22. september, á Selfossi. Ef einhver getur gefið upplýsingar um ferðir Irenu, vinsamlega hafið samband við lögregluna á Suðurlandi, gegnum 112.

SHARE