8 merki um að þú sért í sambandi sem muni endast

Stundum er maður í sambandi sem maður veit, innst inni, að er ekki framtíðarsamband. Það eru samt nokkur merki um að þú sért í sambandi sem hefur alla burði til að endast í heilbrigðu jafnvægi, öryggi og raunverulegri tengingu.

1. Þið getið rætt erfið mál án þess að allt fari í uppnám

Ef það þið lendi í ágreiningi endar hann ekki í þögn eða sprengingu. Málið snýst meira um að finna lausnir ekki að hafa betur. Þið getið hlustað, jafnvel þó þið séuð ósammála.

2. Þér finnst þú vera örugg/ur og getur verið þú sjálf/ur

Þú þarft ekki að vanda þig við að velja orð þín og fela tilfinningar þínar. Þér finnst þú ekki þurfa að vera betri eða stærri en þú ert. Öryggi er grunnur að því að sambandið þitt muni endast.

3. Traustið er raunverulegt, ekki bara á yfirborðinu

Þú þarft ekki stöðuga staðfestingu á sambandinu og afbrýðisemi stjórnar ekki sambandinu og þið standið við orð ykkar. Traust byggist upp á því hvernig þið hagið ykkur ekki bara á innantómum orðum.

4. Þið veljið hvort annað alla daga

Þið veljið hvort annað alla daga, ekki af gömlum vana heldur af því þið viljið það. Þið látið sambandið vera í forgangi, sýnið hvort öðru athygli og haldið tengingunni á lífi. Langtímasambönd eru val, ekki tilviljun.

5. Þið getið verið ósammála án virðingarleysis

Þið getið verið ósammála án þess að vera með virðingarleysi, niðurlægja hvort annað, hæðast að hvort öðru eða nota meiðandi orð. Virðing, þrátt fyrir ágreining, er sterkasta merkið um að sambandið muni endast.

6. Þið styðjið hvort annað í því að vaxa sem einstaklingar

Þið gleðjist yfir árangri hvors annars. Þið hvetjið hvort annað í að elta drauma ykkar, jafnvel þó þið séuð ekki með sama drauminn. Það er engin öfund og þið styðjið vöxt hvors annars.

7. Þið deilið ábyrgð

Þið deilið ábyrgðinni á heimilisverkum, andlegum byrðum og ákvörðunum. Sambandið endist enn betur ef annar aðilinn ber ekki allar byrðarnar.

8. Sambandið gefur þér meiri orku en það tekur

Þú finnur fyrir því að þó að það sé ekki alltaf auðvelt að vera í sambandi þá gefur það þér styrk, tengingin er góð og þér líður eins og þú sért ekki ein/n í heiminum.

Samband sem tekur frá þér orku endist sjaldan.


Sjá einnig:

SHARE