
Það getur verið erfitt að átta sig á því hvort foreldri manns sé tilfinningalega lokað, sérstaklega vegna þess að maður er alin/n upp við það. Ef foreldri er tilfinningalega lokað getur það samt haft djúpstæð áhrif á sjálfsmynd barns, sambönd og andlega líðan langt fram á fullorðinsár. Að átta sig á mynstrinu er mikilvægt fyrsta skref í átt að skilningi og bata.
1. Foreldrið á erfitt með að bregðast við tilfinningum
Tilfinningalega lokaðir foreldrar finna oft fyrir óþægindum þegar kemur að tilfinningum — bæði sínum eigin og annarra. Þegar þú ert sorgmædd/ur, reið/ur eða glöð/glaður gætirðu fengið viðbrögð eins og: „Þetta er ekkert mál“ eða „Þú ert að gera of mikið úr þessu“. Með tímanum lærir barnið að bæla tilfinningar sínar niður.
2. Samræður eru yfirborðskenndar
Samtöl snúast helst um hagnýta hluti eins og skóla, vinnu eða skyldur, en sjaldan um innri líðan, hugsanir eða framtíðardrauma. Þegar þú reynir að opna þig gætirðu mætt þögn, vandræðalegri stemningu eða skjótum lausnum í stað hlustunar.
3. Foreldrið var líkamlega til staðar en ekki tilfinningalega
Foreldrið sá kannski um grunnþarfir — mat, húsaskjól og rútínu — en þú upplifðir samt einmanaleika. Það var eins og eitthvað mikilvægt vantaði, jafnvel þótt allir væru „á staðnum“.
4. Hlýja og viðurkenning voru takmörkuð
Hrós, knús eða huggun voru sjaldgæf eða háð frammistöðu. Þú gætir hafa upplifað að þú þyrftir að „standa þig“ til að eiga skilið athygli eða ást.
5. Foreldrið forðast berskjöldun
Tilfinningalega óaðgengilegt foreldri deilir sjaldan eigin tilfinningum eða reynslu. Þau geta virst köld, mjög rökföst eða lokuð og gefið þannig til kynna að viðkvæmni sé veikleiki.
6. Þínum þörfum var mætt með pirringi eða sektarkennd
Ef það að biðja um stuðning eða sýna þarfir leiddi til gremju, þagnar eða sektarkenndar, lærðir þú kannski að halda aftur af þér. Það gæti valdið því að þú, sem fullorðin manneskja, gætiruð því átt erfitt með að biðja um hjálp eða trúa því að þarfir þínar skipti máli.
7. Þú varðst „ábyrga barnið“
Margir í þessum aðstæðum þroskast of snemma. Þeir verða þeir sem stilla til friðar, umsjónaraðilar eða tilfinningalegur stuðningur foreldris — hlutverk sem getur valdið þreytu og tómleikatilfinningu síðar.
Hvað þýðir þetta fyrir þig?
Það er ekki þér að kenna ef foreldri þitt var tilfinningalega óaðgengilegt. Oft endurspeglar það þeirra eigin uppeldi, áföll eða takmarkaða tilfinningafærni.
Sjá einnig:
- 3 mistök sem foreldrar gera þegar á að svæfa ungbarn

- Hvaða áhrif hefur það á unglinga að byrja að drekka snemma?

- Er barnið með einhverfu? – Vísbendingar um einhverfu barns á leikskólaaldri

- Þær vilja ekki að barnið þeirra fari í fegrunaraðgerðir

- 6 ráð við þvott á fötum

- Hvernig liti Lady Gaga út ef hún hefði fæðst á Íslandi?


Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














