Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Eðvarði Guðmannssyni. Eðvarð er 36 ára og hefur ekkert heyrst frá honum síðan 23. apríl sl. Eðvarð er 180 cm á hæð, þybbinn, skolhærður, stuttklipptur.
Hann er líklega klæddur í græna úlpu og svartar buxur.
Þeir sem vita um ferðir Eðvarðs eru beðnir um að láta lögregluna vita í síma 444-1000.