Megrunardrykkir auka þunglyndi

Megrunardrykkir og drykkir með gervisykri eru taldir auka hættu á þunglyndi. Nokkrir kaffibollar á dag draga úr hættu á þunglyndi. Þetta sýnir niðurstaða nýrrar rannsóknar bandarískra vísindamanna.

Rannsóknin náði til 250 þúsund Bandaríkjamanna og stóð í 10 ár. Í ljós kom að kaffidrykkja tengist minni hættu á þunglyndi. Hins vegar er þunglyndi algengara hjá þeim sem neyta drykkja sem sykraðir eru með sætuefnum, en hinum sem ekki neyta sætuefna.

Vísindamennirnir sem starfa við Heilbrigðisstofnun Norður-Karolínu komust að því að fólk sem drakk fjóra kaffibolla á dag voru í 10% minni hættu á að greinast með þunglyndi en þeir sem ekki drukku kaffi. En þeir sem drukku fjórar dollur eða flöskur á dag af drykkjum sem sykraðir voru með gervi-sætuefnum juku hættuna á að greinast með þunglyndi um þriðjung.

Sætuefni í mat og drykk eru mjög umdeild. Sum sætuefni eins og aspartame eru talin mjög heilsuspillandi og rannsóknir sýna að aspartame eykur hættu á að fólk fái blóðkrabbamein. Talsmaður skýrsluhöfunda segir að rannsóknin bendi til að með því að skipta út drykkjum með sætuefnum og drekka í staðinn ósætt kaffi sé hægt að draga úr hættunni á þunglyndi.

Ef þú villt vita meira þá eru hér linkar og myndbönd:

Drykkja á sykurlausum gosdrykkjum tengt við þunglyndi.


Aspartam er hættulegasta bætiefnið í mat og drykki í dag.

Hvernig mergunadrykkir þyngja þig

5 áhugaverðir aukaverkanir vegna drykkju á sykurlausum gosdrykkjum
http://www.youtube.com/watch?v=VU_BXsNd7GA

 

Heimildir:

mbl.is  09 janúar 2013 

Birt með góðfúslegu leyfi heilsufrelsi.is


heilsufrelsi_small

SHARE