Mottuboð í Hofi menningarhúsi!

MOTTUBOÐIÐ 2013

Klúbbur matreiðslumeistara á Norðurlandi, í samstarfi við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrenni, stendur að Mottuboði fimmtudaginn 21. mars nk. kl. 20.

Sannkölluð veisla fyrir augu, eyru og munn.

Stútfull skemmtidagskrá, listmunauppboð og 15 rétta matarveisla.

Tilgangur Mottuboðsins er að vekja athygli á krabbameini karla, stuðla að forvörnum og styrkja starf Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.
Við innganginn verður Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis með kynningu á starfsemi sinni og fræðslu um krabbamein og krabbameinsleit.
Léttar veitingar verða í boði frá meðlimum í Klúbb mtreiðslumeistara á Norðurlandi, í samstarfi við fjölmarga birgja og veitingastaði á Norðurlandi.

Skemmtiatriði verða fjölmörg og má þar m.a. nefna Karlakór Akureyrar – Geysi, Hund í óskilum, þjóðþekkta hagyrðinga og uppboð Sigga Gumm á listmunum norðlenskra listamanna. Veislustjóri verður Sigurvin „Fíllinn“ Jónsson.

Allir birgjar, matreiðslumenn, listamenn og aðrir styrkja málefnið með vinnu sinni og vörum.

Miðaverð er aðeins 3.000 kr. og rennur óskipt til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

Vona að þú sjáir þér fært að mæta og eiga góða kvöldstund og leggja málefninu lið!

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here