Nostalgía fyrir allra sanna Akureyringa – ,,Ég var einu sinni frægur”

Ég var einu sinni frægur er leikverk eftir Jón Gunnar og snillingana þrjá:
Gest Einar, Þráinn Karlsson og Alla Bergdal

[quote],,Mígandi drullufyndin skemmtun”[/quote]

Stórleikararnir Þráinn Karlsson, Gestur Einar og Alli Bergdal leika sig sjálfa; gamla bitra geðilla leikara sem halda að þeir séu virtir, dáðir og sívinsælir.
Sýningin gerist á Kanarí og fjallar um ferð eldri borgara frá Akureyri til Kanarí sem fer algjörlega úr böndunum.
Leikararnir nota sögur úr eigin reynslu, Gestur Einar þolir ekki Gogga úr Stellu í Orlofi, Alli Bergdal þolir ekki Skralla trúð og Þráinn Karlsson þolir ekki þegar fólk segir við hann; mikið líturðu vel út!
Í sýninguna fléttast leikhústónlist úr þeim verkum sem hafa staðið upp úr á 50 ára leiklistarferli.
Skemmtunin er 70 mínútur að lengd, setið er til borðs og barinn er opinn.
Sýningin er því tilvalin fyrir vinnuhópa, vinahópa, saumaklúbba og stórfjölskyldur og sem sprenghlægilegur fordrykkur fyrir jólahlaðborð. Eða bara fyrir fólkið af götunni sem vill koma og skemmta sér.
“nostalgía fyrir alla sanna Akureyringa”!

Sýningin var frumsýnd í nóvember og var hugur á því að hún gæti jafnvel haldið áfram í desember. Desember hefur hins vegar aldrei verið talinn góður leikhúsmánuður á Akureyri. En það voru þó yfir 10 uppseldar sýningar og aukasýning milli jól og nýárs. Nú hefur verið ákveðið að skella á sýningum í janúar og meira að segja byrjað að skipuleggja túr um landið.

Þessi sýning átti að vera Grand Finale fyrir þessa stórleikara, en nú bara geta þeir ekki hætt og verður sýningin áfram og því upplagt fyrir fólk að norðan, nú eða fyrir þá sem vilja skreppa í helgarferð í höfuðborg norðurlands og gera sér gott kvöld með þessum snillingum.
Þeir eru jafnvel enn þá frægir!

Leikstjóri: Jón Gunnar
Leikarar: Gestur Einar Jónasson, Þráinn Karlsson, Aðalsteinn Bergdal

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here